Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en við sumar aðstæður getur verið að það sé ekki endilega lausnin eins og í tilfelli konu sem sendi inn erfiða spurningu í dálkinn Dear Abby í NY Post. Konan hefur verið hamingjusamlega gift í 35 ár og á þrítugan son, Caleb. Caleb er giftur og gengur vel í lífinu. Caleb elskaði ömmu sína en hún lést nýverið. „Hann dýrkaði hana og hún elskaði hann og dekraði við hann,“ segir hún í bréfinu.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?