Bandaríski söngvarinn Chris Brown fékk átta mánaða skilorðsbundinn dóm í dag í tengslum við slagsmál á næturklúbbi í Lundúnum fyrir þremur árum. Refsingunni var frestað til eins árs. Hann þarf því ekki að afplána dóminn nema hann fremji annað brot á því tímabili.
Brown játaði sök vegna óspekta á almannafæri fyrir dómi í júlí. Atvikið átti sér stað á næturklúbbnum Tape í Mayfair í Lundúnum 2023. Það náðist á öryggismyndavél og var sýnt í dómsal í dag.
Sást slá til mannsins með tekíla-flösku
Á myndskeiðinu sést þegar átök brjótast allt í einu út. Brown sést, ásamt öðrum manni, ráðast á tónlistarframleiðandann Abe Diaw. Brown sést meðal annars slá til Diaw með flösku af áfengi tvisvar sinnum.
Hinn árásarmaðurinn heitir Omololu Akinlolu og er líka bandarískur. Hann játaði einnig sök vegna óspekta. Hann hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm.
Dómarinn í málinu sagðist hafa tekið til greina hversu troðið og þröngt var á næturklúbbnum þegar árásin átti sér stað. Hann segist einnig hafa haft í huga að þeir Brown og Akinlolu hafi elt Diaw og haldið áfram að reyna að ráðast á hann jafnvel þegar hann reyndi að flýja.
Lengd atviksins, eða öllu heldur hversu stutt það var, aðeins um 20 sekúndur, spilaði einnig inn í ákvörðun dómarans um refsingu. Hann tók þó fram að þó að árásin hafi ekki staðið lengi yfir hafi ofbeldið verið gífurlegt þrátt fyrir að árásin hafi ekki verið skipulögð.
Áður hlotið dóma fyrir ofbeldisverk
Dómarinn sagði sakborningunum tveimur að þrátt fyrir að þeir væru ekki að fara í fangelsi ættu þeir samt sem áður að líta á dóminn sem refsingu. Þeir þurfa báðir að greiða sakarkostnað, 1.500 pund, um 250 þúsund krónur.
Brown hefur áður hlotið dóma fyrir ofbeldisverk. Hann var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa gengið í skrokk á þáverandi kærustu sinni, söngkonunni Rihönnu, fyrir Grammy-verðlaunin 2009.
Hann var viðriðinn slagsmál á næturklúbbi í New York 2012 og sakfelldur 2014 fyrir að hafa ráðist á aðdáanda.