Áhorfendur taka fálega í nýjasta sköpunarverkið úr smiðju auðkýfingsins Elon Musk, um er að ræða fyrsta þátt úr útgáfu hans af Ódysseifskviðu.Líkt og fjallað var um í sumar var Musk mjög óhress með stórmyndina The Odyssey og taldi hana vera enn eina sönnun þess að Hollywood væri á rangri leið. Sakaði hann leikstjórann Christopher Nolan um kynþáttafordóma gegn hvítu fólki vegna þess að Óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong'o var ráðin í hlutverk Helenu frá Tróju.
Gervigreindarmynd Musk um Ódysseif fær harkalega útreið – „Algjört rusl“