Hópur manna á vegum lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að því í dag að undirbúa leit að líki Lúðvíks Péturssonar sem féll í gryfju í Grindavík í janúar 2024. Leitin hefst í fyrramálið.
Viðbragðsaðilar og sérfræðingar setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar í dag og huga að öryggi áður en leitin hefst í fyrramálið.
Fyrr í október var greint frá því að ákveðið hefði verið að senda sigmenn til leitar. Sú ákvörðun byggði á áhættumati verkfræðistofunnar COWI.
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, sagðist um helgina vera þakklátur öllum sem lögðu sitt af mörkum við að ákveða að leitin færi fram og jafnframt þeim sem fara niður gryfjuna til leitar.
Um þetta skrifaði Elías á Facebook-síðu sinni.
„Engu að síður er erfitt að horfa framhjá því hve skamman tíma það tók að setja Lúlla í þá aðstöðu sem hann var settur í, og hve langan tíma það hefur tekið að komast hingað. Nærri þrjú ár. Það þurfti áhættumat, mat erlendra sérfræðinga og mótvægisaðgerðir áður en óhætt þótti að senda nokkurn mann niður í sprunguna. Það er rétt og eðlilegt að fara varlega.“
„Þegar Lúlli og vinnufélagi hans voru settir til verka í bakgarði í Grindavík við að fylla undir hús í janúar 2024 var engu slíku til að dreifa,“ skrifaði Elías. Hann vísaði til þess að Veðurstofan hefði á þeim tíma verið búin að vara sérstaklega við sprunguhreyfingum en að ekkert mat hefði legið fyrir á hættunni sem fylgdi því verkefni sem Lúðvík og vinnufélaga hans var falið. „... né á því hvort verkið væri yfirhöfuð áhættunnar virði.“
Elías sagði sárast að þetta hefði verið óþarft. „Lúlli dó ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla, heldur vegna ákvarðana sem voru teknar og ákvarðana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar.“