Íhugar að fara í mál við Sigfús

Jasmina Vajzovic segist íhuga að leita lögfræðilegrar aðstoðar vegna ummæla Sigfúsar Aðalsteinssonar, fasteignasala og forsvarsmanns hreyfingarinnar Ísland þvert á flokka. Hún sakar Sigfús um að eigna sér skoðanir sem hún hafi aldrei lýst og krefst þess að nafn hennar verði fjarlægt úr færslu hans.
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ skrifar Jasmina og segist ekki kæra sig um að nafn hennar sé dregið inn í mál sem henni séu óviðkomandi.
Tilefni viðbragða Jasminu er færsla sem Sigfús birti á Facebook-síðu Ísland þvert á flokka. Þar fjallaði hann um meint atvik þar sem leigubílstjóri er sagður hafa rukkað erlendan ferðamann um tíu þúsund krónur fyrir akstur frá Ásbrú að Keflavíkurflugvelli. Sigfús hélt því jafnframt fram að ökumaðurinn hefði tekið síma ferðamannsins og kastað honum í götuna eftir að farþeginn kvartaði yfir verðinu.
Í færslunni tengdi Sigfús meint atvik við trúarbrögð þeirra sem hann sagði starfa hjá leigubílastöðinni og hélt því fram að hann fengi fjölmargar frásagnir af þjófnaði, hótunum og dónaskap. Þá dró hann Jasminu inn í umræðuna og sagði hana telja slíka háttsemi eðlilega.
Hafnar lýsingu Sigfúsar alfarið
Jasmina hafnar þeirri lýsingu alfarið.
„Í færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar er því haldið fram að ég telji ofbeldi, þjófnað og hótanir eðlileg og að ég kalli fólk illum nöfnum. Þessu hafna ég alfarið,“ skrifar hún.
Hún segir að það sé rangt að hún telji ofbeldi, þjófnað eða hótanir eðlilega og sömuleiðis að hún hafi kallað Sigfús illum nöfnum. Hún hafi vissulega lýst honum sem hvítum, miðaldra forréttindakarlmanni en bendir á að hún hafi með sama hætti lýst sjálfri sér sem hvítri, miðaldra forréttindakonu.
„Það er lýsing á samfélagslegri stöðu, ekki uppnefni,“ segir Jasmina.
Hún segir meginsjónarmið sitt hafa verið að einstaklingar beri ábyrgð á eigin gjörðum og að afbrot eins einstaklings réttlæti ekki alhæfingar um heila þjóðar- eða trúarhópa.
„Að benda á það er ekki að samþykkja ofbeldi eða réttlæta afbrot. Það hef ég aldrei gert,“ skrifar hún.
Jasmina segist hafa óskað eftir því að Sigfús fjarlægi nafn hennar úr færslunni og leiðrétti þær skoðanir sem henni séu þar eignaðar. Verði ekki orðið við þeirri beiðni hyggist hún leita lögfræðilegrar aðstoðar.
„Verði ekki orðið við því mun ég leita lögfræðilegrar aðstoðar til að gæta réttar míns,“ segir Jasmina.
Deilurnar eiga sér lengri aðdraganda
Deilurnar eiga sér lengri aðdraganda. Jasmina hafði áður gagnrýnt ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, um innflytjendamál. Elliði hafði meðal annars lýst áhyggjum af áhrifum umfangsmikils innflytjendaflæðis og sérstaklega nefnt múslima í því samhengi. Hann sagði síðar að gagnrýni sín beindist að innflytjendastefnu og hugmyndum eða venjum sem gengju gegn jafnrétti og frelsi.
Jasmina, sem er múslimi, tók þátt í þeirri umræðu og hefur lagt áherslu á að ekki eigi að dæma heila hópa út frá gjörðum einstakra manna.
Hún tekur jafnframt fram að gagnrýni á hennar eigin málflutning sé eðlileg og að fólki sé frjálst að vera henni ósammála.
„Fólk má vera ósammála mér og gagnrýna það sem ég segi. En ég sætti mig ekki við að mér séu lögð orð í munn og síðan ráðist á mig fyrir þau,“ skrifar Jasmina.
Hún biður einnig þá sem taka þátt í umræðunni að gæta orða sinna og segist ekki vilja sjá uppnefni í garð Sigfúsar.
„Kæri mér ekki um uppnefni á manninum heldur. Mun eyða slíkum ummælum. Mín markmið eru ekki að vera á sömu línu og Sigfús,“ segir Jasmina.