Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

Luiz Inácio Lula da Silva, sitjandi forseti Brasilíu, hafði betur gegn Flávio Bolsonaro í síðari umferð forsetakosninganna í Brasilíu sem fram fór í gær. Úrslitin komu nokkuð á óvart enda hafði Bolsonaro haft betur í fyrri umferð kosninganna og verið með forystu í skoðanakönnunum undanfarnar vikur.
Samkvæmt opinberum niðurstöðum hlaut Lula 51,79 prósent atkvæða en Bolsonaro 48,21 prósent. Munurinn á frambjóðendunum nam meira en fjórum milljónum atkvæða.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hafði lýst yfir stuðningi við Bolsonaro fyrir kosningarnar. Hannes, sem hefur dvalið talsvert í Brasilíu, birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann gerði grein fyrir afstöðu sinni.
Hann gagnrýndi Lula fyrir að hafa færst til vinstri á undanförnum árum og vísaði meðal annars til meintra samskipta hans við stjórnvöld í Íran, Rússlandi og Kína. Hannes taldi Bolsonaro líklegri til að færa Brasilíu nær Vesturlöndum.
„Ég vona, að Flávio Bolsonaro nái kjöri,“ skrifaði Hannes áður en kjörstaðir opnuðu.
Hannes lagði jafnframt áherslu á efnahagsmál og sagði brýnt að auka atvinnufrelsi í Brasilíu. Að hans mati gæti slíkt bæði dregið úr spillingu og fjölgað tækifærum fátækra til að bæta lífskjör sín.
Kjósendur völdu hins vegar Lula til áframhaldandi setu í forsetaembættinu.