Í fréttatilkynningu þess efnis frá lögreglunni segir að viðbragðsaðilar og og sérfræðingar verði við vinnu í dag til að huga að öryggi og setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar, sem stefnt sé á að fara í um klukkan 09:00 á morgun við Vesturhóp 29 í Grindavík.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi virkjað vettvangsstjórn vegna þessa, sem sé að störfum í Grindavík.
Leitaraðgerð þessi sé gerð í kjölfar áhættumatsvinnu sem lögreglustjóri beri ábyrgð á og unnið sé eftir.