Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í svari við fyrirspurn fréttastofu. Hann segir skúrinn ónýtan vegna viðhaldsskorts og engin áform séu um að taka aftur upp þá starfsemi sem þar var áður.
„Áformað er að rífa skúrinn en ekki liggur fyrir hvenær það verður gert,“ segir Guðjón.
Geyma þar skóflur þegar þörf krefur
Skúrinn stendur enn en Guðjón segir hann ekki lengur nýttan sem afdrep.
„Skúrinn er ekki í neinni notkun nema sem tilfallandi geymsla á skóflum og slíkum vetrarbúnaði gerist þess þörf.“
Sú geymsla sé í öðrum hluta skúrsins en þeim sem leigubílstjórar höfðu áður til afnota.
„Ekki eru uppi nein áform um að nýta hann með þeim hætti sem áður var enda er hann ónýtur vegna viðhaldsskorts eins og fram hefur komið í fyrri umfjöllun.“
Lokuðu eftir úttekt á húsnæðinu
Skúrinn komst í umræðuna vorið 2025 eftir að leigubílstjórar kvörtuðu undan því að þeim væri meinaður aðgangur að kaffiaðstöðunni, sem aðrir bílstjórar nýttu til bænahalds.
Isavia sagði þá að tryggja ætti öllum leigubílstjórum aðgang að skúrnum. Í kjölfarið var húsnæðið tekið út og niðurstaðan varð að loka því vegna bágs ástands.
Vísir greindi frá ákvörðuninni 4. júní í fyrra. Isavia tók þá ábyrgð á viðhaldsskortinum og vísaði leigubílstjórum á salerni og mötuneyti flugstöðvarinnar.