Rannsóknir standa yfir á því hvort að jarðlög á Grundartanga henti til að binda þar koldíoxíð.
Boruð var hola sem nær niður á 1.504 metra dýpi. Hún er notuð til að rannsaka berggrunnið og möguleika á niðurdælingu og bindingu koldíoxíðs.
Carbfix, Elkem, Norðurál og Þróunarfélag Grundartanga vinna að verkefninu með stuðningi Orku- og loftslagssjóðs.
Í færslu um rannsóknirnar á vef Hvalfjarðarsveitar segir að markmiðið sé bæði að hafa umtalsverð jákvæð áhrif með því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og að efla samkeppnisstöðu svæðisins.
Eftir að borun lauk var rennsli mælt og ádæling prófuð ásamt því að rýna í fyrstu niðurstöður. Stefnt er að því að niðurstöður liggi fyrir í nóvember.