„Ég stoppa ekki,“ sagði hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson þegar Nútíminn ræddi við hann strax eftir sigur hans á Lettanum Dinars Skripkins á Spáni á laugardagskvöld. Emin lýsti því hvernig hann náði að slaka á eftir stífa byrjun og sagðist hafa viljað senda andstæðingnum skýr skilaboð eftir samskipti þeirra í vigtuninni.
Blaðamaður Nútímans var á staðnum þegar Emin vann bardagann í annarri lotu. Þetta var sjötti sigur hans í jafnmörgum atvinnubardögum og sá fjórði á þessu ári.
Náði að slaka á eftir stífa byrjun
Þrátt fyrir öruggan sigur var Emin ekki fyllilega sáttur við byrjunina. Hann sagðist hafa verið reiður og viljað grípa andstæðinginn.
„Ég stífnaði svolítið mikið,“ sagði Emin.
Ráðleggingar úr horninu hjálpuðu honum hins vegar að ná ró sinni. Hann lýsti því hvernig hann hefði andað djúpt og komið slakari inn í framhaldið. Þá hefði þetta farið að ganga upp.
Vildi senda skýr skilaboð
Aðspurður um hversu hart hann hefði tekið á Skripkins í upphafi sagði Emin að það hefði átt sér aðdraganda í vigtuninni.
„Ég vildi bara senda honum skýr skilaboð.“
Hann sagði Skripkins hafa horft á sig upp og niður og verið með stæla. Emin sagðist þá hafa spurt hann: „What the fuck are you looking at?“
Hann vildi sýna strax í hringnum að hann ætlaði hvergi að gefa eftir.
Vill stærri tækifæri á næsta ári
Emin hefur haft nóg að gera í hringnum undanfarna mánuði og ætlar að halda áfram.
„Ég er búinn að taka fjóra bardaga á þessu ári,“ sagði hann.
Hann stefnir á fleiri bardaga áður en árið er úti og vonast eftir stærri tækifærum á næsta ári. Markmiðið sé að mæta betri andstæðingum og halda áfram að bæta sig.