Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá slökkviliði. Þar segir að meðal annarra verkefna hafi verið að aðstoða köttinn Sigurlaugu eftir fall af svölum íbúðar hennar á níundu hæð niður á svalir á íbúð á fjórðu hæð.
Sú íbúð var mannlaus og óskaði eigandi eftir aðstoð slökkviliðs til að sækja Laugu eins og hún er kölluð. Virtist kisi óslasaður og fór eigandi með hana til dýralæknis til skoðunar. Segir slökkvilið að Lauga hafi nú líklega tapað einu af níu lífum sínum.
Lögregla sinnti fleiri verkefnum um helgina. Meðal þeirra voru umferðarslys, vatnsleki og skoðanir vegna gruns um eld í húsnæði.