Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Laumubrúðkaup í helli
Gerður Arinbjarnardóttir, betur þekkt sem Gerður í Blush, og Jakob Fannar Hansen giftu sig með pomp og prakt á Ítalíu í vor en tóku þó forskot á sæluna fyrir ári síðan. Þá laumuðust þau í helli á Suðurlandi og gengu í hjónaband. Hjúin fögnuðu tímamótunum um helgina.
Gerður ræddi við Lífið á Vísi um draumadagana á Ítalíu í vor.
Daglegt líf Brynhildar
Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir deildi vel völdum myndum frá daglegu lífi sínu og fleira var það ekki.
Skvísa á Spáni
Fasteignasalinn Móeiður Svala fór í algjöra skvísuferð til Marbella á Spáni.
Shrek-stuð
Stjörnurnar Eyþór Wöhler, tónlistarmaður, og Guðrún Svava, eða áhrifavaldurinn Gugga í gúmmíbát, tóku forskot á Hrekkjavöku og klæddu sig upp sem Fiona prinsessa og Lávarður Farquaad úr teiknimyndinni Shrek.
Fer líka á foreldrafundi
Gusumeistarinn og áhrifavaldurinn Camilla Rut skellti sér út á lífið en tók skýrt fram á Instagram að hún færi líka á foreldrafundi.
Sjóðheit í sjúklega heitu maraþoni
Hjónin Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, fjölmiðlakona, og Haukur Ingi Guðnason, sálfræðingur, tóku þátt í sjúklega heitu maraþoni í Valencia. Upplifunin var ógleymanleg og stemningin brjáluð.
Vill deila því sem gerir hana öðruvísi
Sigga Ózk, tónlistarkona og Ungfrú Ísland, var að gefa út lagið Universe áður en hún tekur þátt í Miss Universe. Hún segist vilja leyfa sjálfri sér að búa í eigin töfraheimi og vera samkvæm sjálfri sér.
Sautján ár af Andreu
Fatahönnuðurinn Andrea fagnaði stórum tímamótum um helgina. Fataverslun hennar, sem heitir í höfuðið á henni, opnaði fyrir heilum sautján árum og segir Andrea að það hafi bókstaflega alltaf verið gaman.
Norðurljós og falleg kúla
Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Erna Hrund Hermannsdóttir birti einstaklega töfrandi óléttumyndir í sveitinni þar sem norðurljósin skörtuðu sínu allra fegursta.
Flúraði fyrstu plötuna á magann
Ungstirnið Maron Birnir er að gefa út fyrstu plötuna sína, Í fyrsta sinn. Hann lét flúra nafnið á magann sinn og er mjög spenntur fyrir útgáfunni.
Maron Birnir hefur vakið mikla athygli í tónlistarsenunni undanfarið ár og ræddi um drauma sína á einlægan máta við blaðamann Lífsins fyrir ári síðan.
Barbí sem elskar að djamma
Lögmaðurinn Diljá Helgadóttir er dugleg að njóta lífsins í London þar sem hún er búsett. Hún klæddist bleikum pallíettukjól og skellti sér í Selfridges, sem er glæsilegt vöruhús í stórborginni, með góðum vinum.
Diljá Helgadóttir ræddi við blaðamann um lífið í London, sem er ævintýri líkast.
Gummi Emil þakklátur englunum
Einkaþjálfarinn Gummi Emil segist þakklátur englunum í kringum sig. Hann fór í gusu og giggaði á Akureyri á dögunum.
Hlýjar minningar að loknu sumri
Áhrifavaldurinn Rósa Kristín birti nokkrar vel valdar myndir frá Mallorca en hún naut lífsins á sólríku eyjunni í sumar.
Gaf út plötu og fór í dragt
Tónlistarkonan og rísandi stjarnan Tatjana Dís var að gefa út plötuna Líf 2 og endaði með rósroða á hægri kinn eftir álagið. Hún segir ferlið hafa verið óbærilegt en ótrúlegt og er í skýjunum með útkomuna. Því var tilvalið að skella sér í dragt í tilefni af útgáfu.
Speglamyndir hjá Brynju
Dansarinn og áhrifavaldurinn Brynja Bjarnadóttir Anderiman birti fjórar góðar speglamyndir á grammið.
Halla í skýjunum með kótiletturnar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands var rosalega glöð með kótilettukvöld Samhjálpar.
Listamenn á tímamótum
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson fagnaði sextugsafmæli sínu í gær og kastaði góðri afmæliskveðju á listamanninn Jón Óskar á föstudag. „Þú verður bara yngri og fegurri með aldrinum,“ skrifaði Snorri til vinar síns.