Pilla, fimm sinnum tíu millímetrar, fannst í dánarbúi manns í Asikkala í sunnanverðu Finnlandi árið 2024. Lögregla var kölluð til en ef umbúðirnir utan um pilluna bentu til þess að hún kynni að vera geislavirk, að því er kemur fram í frétt finnska ríkisútvarpsins (YLE). Geilsunarmælir fannst einnig í búinu.
Efnið var sent til rannsóknar í kjarnorkuöryggisrannsóknarstofnun Evrópusambandsins í Þýskalandi. Niðurstaða hennar var að pillan væri úr auðguðu úrani. Hún væri ónotað eldsneyti úr sovéskum kjarnaofni frá níunda eða tíunda áratug síðustu aldar.
Jari Kiiskinen, rannsóknarlögreglumaður, segir YLE að ekki liggi fyrir hvernig látni maðurinn komst yfir úranið. Rannsókn sé lokið þar sem eigandi efnisins sé látinn.
Lögreglan segir að efnið hafi ekki stefnt lífi fólks eða umhverfinu í bráða hættu. Ekki kemur fram í frétt YLE hvort það hafi verið vegna umbúðanna eða af öðrum ástæðum.