Vetrarlegt er um að litast víða á vegum landsins þrátt fyrir að útlit sé fyrir hæglætisveður í dag. Öllu hvassara verður á morgun.
Rigning eða slydda er um landið norðanvert framan af og rigning eða súld fyrir austan og á Vestfjörðum í kvöld. Annars er þurrt.
Víða er hálka á vegum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Snjóþekja og éljagangur eða krapi er á heiðum og fjallvegum á Vesturlandi og Norðurlandi.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Hægviðri víðast hvar. Rigning eða slydda um norðanvert landið en dregur smám saman úr úrkomu. Skýjað að mestu syðra en þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig. Norðaustan 3-8 í kvöld, dálítil rigning eða súld fyrir austan og á Vestfjörðum, en annars þurrt.
Norðaustanátt, víða 10-18 á morgun, hvassast á Vestfjörðum og austan Öræfa um tíma í fyrramálið. Talsverð rigning norðan- og austanlands, en úrkomuminna syðra. Hiti 4 til 10 stig.