Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, og Flavio Bolsonaro, sem er öldungadeildarþingmaður og sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro, nær hnífjafnir.
Jair Bolsonaro situr í stofufangelsi fyrir valdaránstilraun gegn sitjandi forseta.
Stór hluti atkvæða sem greidd voru utan kjörfundar hefur þegar verið talinn. Í Japan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Hong Kong hefur Bolsonaro yfirhöndina en Lula sigraði í Kína, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.
Lula fékk 45 prósent atkvæða í fyrstu umferð kosninganna og Bolsonaro fékk 47 prósent.
Vildu lengja opnunartíma
Lula óskaði eftir því fyrr í dag að kjörstaðir yrðu opnir lengur vegna truflana á samgöngum í sumum borgum Brasilíu, til klukkan sjö að staðartíma í stað klukkan fimm.
Bolsonaro vildi einnig að kjörstaðir yrðu opnir lengur vegna slæms veðurs í mörgum borgum. Það liggur ekki fyrir hvort óskir frambjóðenda hafi verið teknar til greina og kjörstaðir í ákveðnum borgum opnir lengur.