Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ekki allar á sama máli enda þyki sumum að betur hefði farið á því að sameina öll embættin í eitt á meðan öðrum hugnist það ekki vegna áhyggna af áhrifum á störf lögreglu á landsbyggðinni.
„Þannig að það var bara að finna bestu leiðina og þessi leið sem núna hefur verið talað fyrir liggur mitt á milli þess að vera með eina lögreglu á landinu og að vera með þessi níu umdæmi sem núna eru.“
Sjálfur hafi hann ekki áhyggjur af því að breytingin dragi úr löggæslu á landsbyggðinni. Þvert á móti telji hann að með því að stækka embættin verði þeim kleift að takast betur á við stærri verkefni. Lögregluþjónum verði ekki fækkað þótt lögreglustjórum fækki.
„Ég held að það skipti ekki öllu máli hvort lögreglustjórinn sé fjarri starfsstöð eða akkúrat á þeirri starfsstöð. Það er gert ráð fyrir að það verði aðstoðarlögreglustjóri á þeim stöðvum sem núna eru.“
Þá verði einnig hægt að samræma verklag lögreglu í landinu betur.
Ég tel að á Íslandi sé ein lögregla jafnvel þó að þetta sé í nokkrum umdæmum.