Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur á Alexandar Vučić, fyrrverandi forseta landsins og flokki hans, sem hafði verið við völd í fjórtán ár.
„Það varð bara allt í einu alveg ótrúlegt gleðiástand“
Írena Guðrún Kojic er Serbi og Íslendingur. Hún fór sérstaklega til Serbíu til þess að kjósa því Serbar fengu ekki að kjósa hér á landi. Hún var í höfuðborginni Belgrad í gær þegar fagnaðarlætin brutust út.
„Ég var reyndar í heimahúsi þegar forsetinn kom fram í sjónvarpið og viðurkenndi í raun og veru tapið.“
Írena segir allt hafa ætlað um koll að keyra þegar niðurstöður kosninganna voru ljósar.
„Það varð bara allt brjálað í Belgrad í gær. Bílar allir flautandi, fólk syngjandi og dansandi úti á götu. Það varð bara allt í einu alveg ótrúlegt gleðiástand í borginni.“
Fyrr um daginn hafði Vučić lokað hluta miðborgarinnar þar sem talning atkvæða fór fram og forsetaskrifstofan er staðsett. Þar eru einnig tjaldbúðir sem kallast Ćaciland sem voru settar upp af stuðningsmönnum Vučić fyrir 18 mánuðum. Tjaldbúðirnar eru fyrir framan forsetaskrifstofuna.
Búðirnar voru afgirtar og lokaðar almenningi. Stuðningsmenn Vučić sem bjuggu í búðunum réðust reglulega á mótmælendur.
„Þannig að það voru allir á þessum tímapunkti vissir um það að hann myndi ekki viðurkenna ósigur og að hann myndi senda sitt fólk út á götu til þess að berja á stúdentum og fólki sem væri að mótmæla, ef það hefði komið til mótmæla. Sem hefði gerst ef hann hefði ekki viðurkennt ósigur sinn.“
Eftir það var viðbragð lögreglu afturkallað og göturnar opnaðar á ný. Tjaldbúðirnar voru einnig teknar niður. Írena segir mikla gleði hafa verið í borginni eftir sigur stúdentahreyfingarinnar.
„Við það varð mikil gleði í borginni.“
Áttu sigurinn skilið
Írena segir stúdentahreyfinguna ótrúlega. „Þau eru búin í tvö ár að ganga um alla Serbíu, fara til Brussel, fara til Strasbourg, hjóla, labba. Þau eru búin að labba inn í allar sveitir, allar borgir þar sem fólk hefur tekið guðdómlega á móti þeim með því að hafa mat tilbúinn fyrir þau.“
Með því hafi hreyfingin verið að upplýsa fólk um hvað væri að gerast í landinu. Vučić hefur stjórnað nánast öllum fjölmiðlum landsins undanfarin ár. Tvær sjónvarpsstöðvar, sem er aðeins hægt að ná í höfuðborginni, hafi flutt fréttir af ástandinu eins og það er, að sögn Írenu.
„Á meðan allar hinar stöðvarnar hafa bara verið að segja frá því sem hann [Vučić] hefur að segja. Hann var yfir 400 sinnum í sjónvarpi á síðasta ári og þá er ég ekki að tala um að hann hafi verið á einni stöð heldur var hann á 46 stöðvum haldandi einræður í um það bil tvo klukkutíma á dag. Þannig að fólk í raun og veru var gjörsamlega óupplýst um hvað væri að gerast í landinu.“
Stúdentahreyfingin hafi því opnað veröldina fyrir fólkinu með sínum aðgerðum. Írena segir hana hafa veirð mjög skipulagða. Hreyfingin hafi stofnað þing innan háskólanna þar sem enginn einn hafi verið í forsvari heldur hafi allar ákvarðanir verið teknar á fundum hjá þeim.
Hún segir hreyfinguna alltaf hafa unnið að því að umræður ættu að fara fram á rólegan og yfirvegaðan hátt.
„Þessi hreyfing er í raun og veru bara svona „phenomenon“ held ég. Og þessi sigur í gær, það áttu hann skilið.“
Kosningaþátttaka hefur ekki verið meiri síðan Júgóslavía leystist upp 1992. Írena segir kosningarnar hafa verið meira eins og þjóðaratkvæðagreiðslu en þingkosningar.
„Kosningarnar snerust eiginlega um bara Serbíu eða mafíu. Þetta var eiginlega svolítið eins og þjóðaratkvæðagreiðsla í raun og veru. Því að þetta átti bara við um flokkinn hans eða stúdentahreyfinguna.“
250 manns eru á lista stúdentahreyfingarinnar og enginn eiginlegur leiðtogi leiðir hreyfinguna. Þar eru margir prófessorar, sérfræðingar, leikarar og bændur, fólk hvaðanæva úr serbnesku samfélagi.
Stúdentahreyfingin vakti fólk til umhugsunar um hvernig samfélagi það býr í
Írena er hálf serbnesk og hálf íslensk. Hún segir kosningarnar hafa verið mikilvægar fyrir tilvist Serbíu.
„Þetta ástand hérna var orðið þannig að annað hvort verður hann að fara frá völdum eða þá að maður gæti gleymt landinu sem slíku því að þá væri bara búið að taka yfir, það væri bara komið einræði sem myndi bara fá að blómstra ef ekkert myndi breytast.“
Írena sagðist í sumar ætla að fara til Serbíu og kjósa ef boðað yrði til kosninga.
„Ég taldi mig þurfa að leggja mitt til, í raun og veru. Af því að Serbía er bæði ríkt land og frábært fólk sem býr hérna og hefur alla burði til þess að verða blómstrandi land. En hefur ekki haft tækifæri til þess vegna stjórnmálaástands. Við erum með forseta sem er í raun bara búinn að gefa meira og minna allt landið og skuldsetja það upp í rjáfur.“
Þeir sem hafi kosið flokk Vučić, Serbneska framfaraflokkinn, hafi upp til hópa verið opinberir starfsmenn, fólk sem vinnur á sjúkrahúsum, pósthúsum, skólum og fleira. Það hafi þurft að færa sannanir fyrir að hafa kosið flokk Vučić og fengið borgað fyrir. Annars hafi það átt á hættu á að missa vinnuna.
„Þetta var orðið svo rosalega mikið, þessi gífurlega spilling og þetta að láta fólk vera endalaust að sýna einhverja hollustu við hann. Stúdentahreyfingin er búin að vekja fólk til umhugsunar um það í hvers konar samfélagi þau bjuggu.“