Wan Anan, 27 ára áhrifavaldur frá Kína, lifði af fall af 35. hæð byggingar í borginni Changsa. Næstum hvert einasta bein í líkama hennar brotnaði og þurfti að taka af henni einn fótinn.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Fyrir 17 mánuðum síðan féll Anan ofan af byggingu en lifði á ótrúlegan hátt af. Féll hún af 35. hæð og ætla má að fallið hafi því verið á bilinu 105 til 122 metrar. Nánast óhugsandi er að lifa svo hátt fall af.
Áhrifavaldur lifði af fall af 35. hæð – Þetta bjargaði lífi hennar