Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Viðbragðsaðilar og sérfræðingar verða við vinnu í dag til að huga að öryggi og setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar sem stefnt er að fara í um kl. 09:00 á morgun við Vesturhóp 29 í Grindavík.Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur virkjað vettvangsstjórn vegna þessa sem er að störfum í Grindavík.
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks