Dægurmálamiðillinn US Weekly greindi fyrst frá sambandi Brady og Swanepoel og hafa fleiri fjölmiðlar síðan fjallað um málið.
„Þau hafa verið að slá sér upp í smá stund,“ sagði heimildarmaður People um parið og bætti við að þau hefðu verið að hittast í nokkra mánuði. Ellefu ár skilja þau að, Brady er 49 ára og Swanepoel er 38 ára.
„Þau búa bæði í Miami svo það er mjög heppilegt. Þau hafa varið miklum tíma saman,“ sagði heimildarmaður People. Þá greindi fjölmiðillinn frá því að parið hefði lagt mikið á sig til að halda sambandinu leyndu. Hvorki Brady né Swanepoel hafa tjáð sig um fregnirnar.
Sjá einnig: Brady og Shayk rugla saman reitum
Brady var giftur Gisele Bündchen frá 2009 til 2022 og eiga þau tvö börn á táningsaldri saman, soninn Benjamin og dótturina Vivian. Þar að auki á Brady nítján ára son með fyrrverandi kærustu sinni, Bridget Moynahan. Hann hefur verið orðaður við Irinu Shayk, Kim Kardashian og Alix Earle eftir skilnaðinn við Bündchen.
Swanepoel var í þrettán ár með brasilísku fyrirsætunni Hermann Nicoli frá 2005 til 2018 og eiga þau tvo syni saman.