Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni verður byrjað á framkvæmdum við hringtorg við Vetrarbraut og síðar við Fífuhvammsveg. Vinnusvæðin eru þröng og menn og við vinnu á tækjum sínum mjög nálægt akstursbrautum.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Þá er einnig stefnt að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn og verður vegurinn lokaður á milli hringtorga við Breðholtsbraut og Norðlingavað en hjáleið um Norðlingabraut.