Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á framkvæmdum stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colas.
Byrjað verður á framkvæmdum við hringtorg við Vetrarbraut og svo verður farið í framkvæmdir við Fífuhvammsveg.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.