„Frumvarpið er engan veginn fjármagnað. Það er ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni samhliða því,“ segir Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS).
Frumvarpsdrög um breytingar á lögum um framhaldsskóla hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) og Félag framhaldsskólakennara (FF) hafa gagnrýnt þau harðlega.
„Það sem bæði við og FF höfum verið að benda á á undanförnum misserum er það að fjárframlög til framhaldsskóla hafa dregist saman allar götur frá því fyrir hrun,“ segir Anton.
Vilja kostnaðarmat
Félögin tvö vilja að gert verði raunhæft kostnaðarmat á tillögum frumvarpsins. „Kaflinn í frumvarpinu um kostnaðarmat er bara óútfylltur eins og er,“ segir Anton.
Hann segir að það gangi ekki að leggja auknar skyldur á herðar framhaldsskóla án þess að gera tilraun til að meta kostnað. „Margir, jafnvel meirihluti, framhaldsskóla á landinu eru reknir með tapi, svo við tölum bara íslensku.“
Lögin skrifuð fyrir annað samfélag
Hann segir enn fremur að núna hefði verið tækifæri til að endurskoða lög um framhaldsskóla í heild sinni og breyta þeim.
„Þessi bútasaumur sem er þarna á ferðinni er ekki nægilega djúptækur til að bæta lög sem eru samþykkt 2008 […] og skrifuð fyrir allt annað samfélag en við erum að fást við núna.“