Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að lægðardrag sem liggur yfir landinu valdi rigningu eða slyddu um norðanvert landið í dag. Syðra verður að mestu skýjað en þurrt.
Það dregur smám saman úr úrkomu í dag en verður þó víða súld eða þokuloft norðaustantil síðdegis. Hiti 0 til 7 stig. Norðaustan 3-8 í kvöld, dálítil rigning eða súld fyrir austan og á Vestfjörðum, en annars þurrt.
Norðaustanátt, víða 10-18 á morgun, hvassast á Vestfjörðum og einnig austan Öræfa um tíma í fyrramálið. Talsverð rigning norðan- og austanlands, en úrkomuminna syðra. Hiti 4 til 10 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s, en 13-18 á Vestfjörðum og austast. Rigning eða súld, einkum norðan- og austanlands, en styttir víða upp sunnanlands síðdegis. Hiti 4 til 9 stig.
Á miðvikudag:
Vestan 8-15 austanlands, en heldur hægari seinnipartinn. Annars hægari breytileg átt. Rigning eða slydda nyrst, en styttir upp seinnipartinn. Annars úrkomulítið og bjart suðaustanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á fimmtudag:
Suðaustan 13-20 m/s með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands, en hægari og úrkomulítið norðaustantil. Heldur hægari sunnanátt og skúrir vestantil um kvöldið. Hiti 7 til 12 stig.
Á föstudag:
Suðlæg átt, 8-15 m/s og skúrir, en bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 8 stig.
Á laugardag:
Sunnan og suðvestanátt. Skúrir eða slydduél, en bjart norðan- og austanlands. Hiti 1 til 6 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir sunnanátt með vætu, en úrkomulítið norðaustantil. Heldur hlýnandi.