Konan hóf störf á spítalanum árið 2007 og var þá í grunnlaunaflokki 300. Eftir nýjan kjarasamning Læknafélags Íslands og ríkisins árið 2015 gátu starfsbundnir þættir á borð við kennslu, rannsóknir, gæðastarf og teymisvinnu leitt til hækkunar um allt að fimm launaflokka. Konan bað ítrekað um hækkun um launaflokka þar sem hún taldi sig uppfylla skilyrðin en fékk ekki. Fór svo að hún hafnaði launasetningu sinni árið 2021 og taldi sig aðeins hafa fengið einn slíkan þátt metinn og hafnaði launasetningu sinni árið 2021. Hélst hún í launaflokki 301 frá 2021 til 2023.
Nýr læknir upp fyrir konuna
Í september 2023 komst konan að því að karlkyns sérfræðilæknir, sem var nýbyrjaður á sömu deild, hefði verið settur í launaflokk 303. Hún gerði athugasemd og var raðað í flokk 304 afturvirkt frá 1. júní 2023. Hún taldi leiðréttinguna ófullnægjandi þar sem aðrir karlar í sambærilegum störfum hefðu verið hærra launasettir árum saman og krafðist í mars 2024 leiðréttingar lengra aftur í tímann. Spítalinn hafnaði því endanlega í júní 2024 og konan kærði niðurstöðuna til kærunefndar jafnréttismála í lok ágúst sama ár.
Landspítali krafðist þess fyrst að málinu yrði vísað frá þar sem kæran hefði borist of seint en nefndin féllst ekki á það. Kærufrestur miðaðist ekki við september 2023, eins og spítalinn hélt fram, heldur við það þegar konunni mátti vera ljóst að launamunurinn næði til fleiri karlkyns lækna. Kæran barst innan sex mánaða frá þeim tíma.
Í málsvörn sinni vísaði spítalinn til þess að launaákvarðanir byggðu á mati stjórnenda og að karlarnir þrír hefðu verið með allt að 15% álag ofan á grunnlaun fyrir árið 2015. Við gildistöku kjarasamningsins hefði það umbreyst í svokallaða sólarlagsflokka sem konan hefði ekki fengið. Forsendur launaákvarðana væru því ólíkar.
Lítið notið launahækkana ólíkt starfsbræðrum sínum
Nefndin féllst ekki á þau rök. Hún benti á að álagsgreiðslurnar hefðu að meginstefnu samsvarað því mati á starfsbundnum þáttum sem tekið var upp 2015 og að konan hefði aðeins að litlu leyti notið launahækkana vegna slíkra þátta á tímabilinu. Þá taldi nefndin að skyndileg launaleiðrétting árið 2023 eftir athugasemdir konunnar benti til þess að konan hefði ekki verið rétt metin fram að því. Spítalinn hefði ekki bent á breytingar á störfum hennar sem réttlættu þá hækkun.
Samkvæmt jafnréttislögum þarf sá sem telur á sér brotið að leiða líkur að mismunun en atvinnurekandi að sýna fram á að launamunur skýrist af öðru en kyni. Nefndin taldi konuna hafa leitt slíkar líkur að mismunun án þess að spítalanum hefði tekist að hrekja þær.
Landspítalinn var því talinn brotlegur við lög á tímabilinu janúar 2021 til júní 2023. Var spítalanum gert að greiða konunni 400 þúsund krónur í málskostnað. Tvö ár liðu frá kæru þar til úrskurður var kveðinn upp. Nefndin tekur fram að vegna breytinga á vistun nefndarinnar og starfsmannahaldi hafi uppkvaðning úrskurðar eftir að gagnaöflun er lokið tafist umfram tveggja mánaða lögbundinn frest.