Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands segir að álitamálum og vafaatriðum vegna breytinga Ingu Sæland menntamálaráðherra á námsmati hafi fjölgað eftir því sem liðið hafi á haustið. Nefndin segir að í stað þess að einfalda námsmat hafi skapast fyrirsjáanleg og óhjákvæmileg óvissa um útfærsluna.
Þetta segja þeir sex skólastjórnendur sem eiga sæti í skólamálanefnd í aðsendri grein á Vísi í dag.
Vonandi ekki börnin sem hía á ráðherrann
„Þrátt fyrir að ráðherra láti sitt færasta fólk þramma með sér þessa leið minnir þessi vegferð óneitanlega ævintýrið um keisarann klæðalausa. Útskriftarárgangur vorsins 2027 hefur verið gerður að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar en vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann í göngunni..“
Nefndarfólk segir gott og aðdáunarvert að mennta- og barnamálaráðherra segist láta verkin tala og lýsa fullri trú á góðan vilja hennar.
„Við viljum hins vegar að vandað sé til verka þegar farið er í stórar breytingar. Góðar umbætur taka tíma og hann eigum við að nýta vel. Vöndum okkur og vinnum saman að bæta menntakerfið út frá þörfum nemenda og samfélagsins. Of skjótar breytingar ráðherra á námsmati hafa nú sett flókið samspil stjórnvalda, fagfólks, foreldra og nemenda í hálfgerða pattstöðu. Afleikur er það síðasta sem menntakerfið okkar þarf á að halda.“
Fagna frumkvæðisathugun
Nefndin fagnar því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi hafið frumkvæðisathugun á ákvörðun og innleiðingu mennta- og barnamálaráðherra á breyttu námsmatskerfi. Nefndarfólk segir traustvekjandi að Alþingi vilji skoða ferilinn og segir ekki heppilegt að kasta til hendinni við breytingar á afmörkuðum þáttum námskrár.