Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Veginum verður lokað á milli tveggja hringtorga, frá hringtorginu þar sem Suðurlandsvegur og Breiðholtsbraut mætast að hringtorginu sem tengir Suðurlandsveg við Norðlingavað.
Hjáleið verður um Norðlingabraut.