Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til klukkan sjö.
Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag. Báðir frambjóðendur óskuðu eftir því að frestur til að kjósa yrði lengdur.
Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, óskaði eftir því vegna truflana á samgöngum í sumum borgum Brasilíu.
Andstæðingur hans, öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, vildi einnig að kjörstaðir yrðu opnir lengur vegna slæms veðurs í mörgum borgum.
Mjótt á munum
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir nær hnífjafnir.
Stór hluti atkvæða sem greidd voru utan kjörfundar hefur þegar verið talinn. Í Japan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Hong Kong hefur Bolsonaro yfirhöndina en Lula sigraði í Kína, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.
Lula fékk 45 prósent atkvæða í fyrstu umferð kosninganna og Bolsonaro fékk 47 prósent.
Þess ber að geta að Flavio Bolsonaro er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro, sem situr nú í stofufangelsi fyrir valdaránstilraun gegn sitjandi forseta.
Fréttin var uppfærð.