Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann segir veður gjarnan koma fyrr en fyrstu spár reikni með.
Sjá einnig: Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið
„Í spá ECMWF er hún ekki eins djúp eða 956 hPa kl. 12 á fimmtudag. Á þó trúlega eitthvað eftir í mestu dýpt. Spá AIFS (hermigreindarspá) á kortunum til hægri, þar lægðin dýpri, en miðjunni spáð vestar, alveg undir A-strönd Grænlands,“ skrifar Einar á Facebook-síðu sinni og veðurvefnum Bliku.is.
Undir austurströnd Grænlands sé hún einnig um sex klukkustundum fyrr á ferðinni.
Til samanburðar var lægðin sem gekk hér yfir í síðustu viku 934 hPa og setti hún októbermet, sagði Einar í samtali við Vísi á föstudaginn.
„Það væri jákvætt fyrir okkur. Raunin er sú að meirihluti djúpra lægða með svipaðan aðdraganda endar þar á hringsóli. Breytir því ekki að feykihvasst verður á undan skilunum með SA- eða A-átt.“