Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var síðan pyndaður til að játa á sig tengsl við hryðjuverk. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt aftökuna harðlega.Tímaritið People greinir frá þessu.Mannréttindasamtökin Human Rights Watch (HRW) hafa gagnrýnt stjórnvöld í Sádi Arabíu harðlega fyrir fyrirvaralausa aftöku Hassan Zaki al-Faraj. Hassan var afhöfðaður þann 17. október.
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum