Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins

Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins

Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki ekki að nafnvirði á tólf mánaða tímabili miðað við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans.

Áformin voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðarins. Lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2027. Samráði lauk fyrir helgi. Alls bárust 16 umsagnir um málið.

SA leggjast gegn fyrirhugaðri styttingu

Meðal þeirra sem skiluðu umsögn voru Samtök atvinnulífsins sem leggjast gegn áformum ríkisstjórnarinnar. SA segja áformin meðal annars fela í sér takmörkun á samningsfrelsi og valkostum heimila. Þá þrengi hærri greiðslubyrði svigrúm heimila til að byggja upp varasjóð og mæta áföllum.

SA séu þó ekki andvíg því markmiði að draga almennt úr vægi verðtryggingar í efnahagslífinu en telji að leiðin liggi fyrst og fremst í auknum efnahagslegum stöðugleika. Samtökin hvetja stjórnvöld til að falla frá áformunum og beina þess í stað kröftum sínum að málum sem eru til þess fallin að auka efnahagslegan stöðugleika og taka tillit til ólíkra þarfa heimila.

Áformin bitni á þeim sem eigi að njóta ávinningsins

Már Wolfgang Mixa, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, leggst einnig gegn áformunum og telur upp sjö ástæður í mjög ítarlegri umsögn. Hann bendir meðal annars á að verðtryggð lán séu stór ástæða þess að óvenju hátt hlutfall Íslendinga búi í eigin húsnæði. Lág greiðslubyrði í upphafi geri mörgum kleift að kaupa sem annars kæmust ekki inn á markaðinn.

  1. Rökstuðningurinn fyrir 25 árum byggir á því að verðbólga verði 2,5%. Frá aldamótum hefur hún aðeins fimm ár verið við eða undir því marki. Talan 25 ár er því valin út frá forsendu sem stenst ekki.
  2. Byrðin lendi mest á tekjulægri og skuldsettari heimilum, einmitt þeim sem ráðuneytið segir að eigi að njóta ávinningsins.
  3. Fullyrðingin um að verðtrygging veiki miðlun peningastefnunnar stenst ekki greiningu Seðlabankans.
  4. Áformin byggja á þeim misskilningi að verðbætur séu kostnaður sem leggist á lántakann umfram það sem hann fékk að láni.
  5. Áhrifamatið er ekki tölulegt, ber áformin aðeins saman við aðra útgáfu af þvingaðri niðurgreiðslu og er að hluta í mótsögn við sjálft sig.
  6. 25 ára hámark er í reynd regla um lágmarkshraða niðurgreiðslu og það er ekki hlutverk ríkisins að ákveða hann. Á sama tíma hefur verið þrengt að séreignarleiðinni, sem gerir fólki kleift að greiða hraðar niður að eigin frumkvæði.
  7. Verðtryggð húsnæðislán hafa raunverulegan galla, en hann felst í viðmiðinu, ekki lánstímanum. Lausnin er að binda þau við vísitölu húsnæðisverðs.

Már leggur til að fallið verði frá áformunum. „Sambærilegu frumvarpi var vísað til ríkisstjórnarinnar af meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar í júní 2021 í ljósi umsagna (Alþingi, 2021, þskj. 1750, 441. mál, 151. löggjafarþing), og rökin gegn því hafa ekki veikst síðan. Ef markmiðið er að verja heimilin fyrir sveiflum ætti að taka á viðmiðinu, ekki lánstímanum,“ skrifar Már í lok umsagnarinnar.

Áformin með öllu óþörf

Hagsmunasamtök heimilanna hafa frá stofnun þeirra í janúar 2009 barist fyrir afnámi verðtryggingar lána til neytenda. Samtökin segja áformin valda þeim verulegum vonbrigðum þar sem þau lúti ekki að afnámi verðtryggingar heldur einungis að 25 ára hámarki á lánstíma verðtryggðra fasteignalána til neytenda með undanþágum og hvergi kemur fram hversu víðtækar þær verða.

„Hagsmunasamtök heimilanna voru beinlínis stofnuð til að bregðast við því ófremdarástandi sem þá hafði skapast af völdum verðtryggingar sem í verðbólguskoti bankahrunsins olli stökkbreytingum á lánum heimilanna með þeim afleiðingum að tugþúsundir einstaklinga misstu heimili sín. Samtökin álitu það vera fagnaðarefni þegar aðgerðir til að draga úr vægi verðtryggingar voru boðaðar í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar og kynningu á fyrsta húsnæðispakkanum. Ofangreind áform valda aftur á móti verulegum vonbrigðum.“

Þá nefna þau í umsögn sinni að samtökin hafi fyrir meira en áratug samið frumvarp um algjört afnám verðtryggingar allra lána til neytenda sem hafi margoft verið lagt fram á Alþingi.

„Samtökin leggja til að það frumvarp verði samþykkt sem lög frá Alþingi fremur en að ofangreindum áformum verði hrint í framkvæmd og þau verði þess í stað lögð til hliðar, enda verða þau þá með öllu óþörf. Öðruvísi verður verðtrygging lána til neytenda ekki afnumin.“

Lendi einna helst á yngri aldurshópum

Að mati ASÍ skortir ítarlegri greiningu á áhrifum boðaðra breytinga í áformaskjalinu, meðal annars hvaða hópar nýti verðtryggð lán með lengri lánstíma en 25 ár og hver sé staða þeirra. Í greiningu á tekjuþróun og fjárhagsstöðu samfélagshópa sem unnin var vegna þríhliða samtals ríkisins, ASÍ og SA má sjá að hækkun vaxta undanfarin ár hafi haft langþyngst áhrif á húsnæðiskostnað og vaxtabyrði yngri aldurshópa.

„Þau áhrif telja ekki ógreiddar verðbætur. Ekki eru teljandi áhrif á húsnæðiskostnað eldri aldurshópa. Breyting á hámarkslánstíma verðtryggðra lána kann því að snerta einvörðungu þann hóp sem nú þegar býr við háa vaxtabyrði.“

Þá gerir ASÍ athugasemd við að umfjöllun í áformskjalinu snúi eingöngu að efnahagsþætti húsnæðismála og hagstjórnarhlutverki stjórnvalda.

„Alþýðusamband Íslands telur ástæðu til að benda á að umfjöllun um húsnæðismál verður aldrei aðgreind frá hinum félagslega þætti. Húsnæðisöryggi og viðráðanlegur húsnæðiskostnaður verður því ávallt að vera í forgrunni.“

ÖBÍ leggst gegn tillögum áformanna

ÖBÍ réttindasamtök skiluðu einnig inn umsögn. Þau telja brýnt að stjórnvöld kanni til hlítar aðgengi fjölbreyttra hópa fatlaðs fólks að húsnæðismarkaði í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fatlað fólk eigi mun erfiðara með að bæta hag sinn, standast lánshæfismat og eignast húsnæði.

ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að leita lausna svo að fleiri eigi kost á að sækja um fasteignalán, standast greiðslumat og eignast eigið húsnæði með tilheyrandi húsnæðisöryggi. Samtökin leggjast gegn áformunum.

„ÖBÍ hefur skilning á þeim efnahagslegu áskorunum sem eru tilgreindar í áformunum, en óttast að sú leið sem á að feta til að leysa vandann muni gera fötluðu fólki erfiðara fyrir að eignast eigið húsnæði.“

#lenda #ríkisstjórnarinnar #verst #áform #þeim

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-26-aform-rikisstjornarinnar-lenda-verst-a-theim-sem-eiga-ad-njota-avinningsins-490931

📰 Aðrar fréttir

Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 2
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 1
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 2
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 2
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 2
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn

Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 2
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 2
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
📅 26.10.2026 👁️ 2
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ segir Jasmina Vajzovic um færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar í hópnum Ísland – Þvert á flokka þar sem han...
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
📅 26.10.2026 👁️ 2
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
A folded map rests on a terrace table as the morning light reaches its edge. Beyond the railing, the sea is still a soft strip of colour. For a travel...
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
📅 26.10.2026 👁️ 2
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum ...
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
📅 26.10.2026 👁️ 2
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
The next fortnight sees two elections on different continents. The outcomes will shape geopolitics and the global economy, writes James Landale
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
📅 26.10.2026 👁️ 2
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunart...
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
Norski áhrifavaldurinn Christian Brennhovd var í sumar sektaður um 120.000 norskar krónur, sem gera um 1,5 milljónir íslenskra króna, vegna ólöglegra ...
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
📅 26.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður...
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
📅 26.10.2026 👁️ 3
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
„Við erum bara hér til að brjóta allt og bramla,“ svarar ungur maður þegar hann er spurður hvers vegna hann taki þátt í mótmælum í Frakklandi. Maðurin...
Chris Brown á skil­orði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Brown á skil­orði - Vísir
BBC greinir frá. Hinn meðákærði, raddþjálfi Browns og rapparinn Omololu Akinlolu eða HoodyBaby, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm. Báði...
Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun kínversku netverslunarinnar sem ætlað er að bæta úr brotum á reglugerð ESB um st...
Chris Brown fær 8 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Brown fær 8 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm
Bandaríski söngvarinn Chris Brown fékk átta mánaða skilorðsbundinn dóm í dag í tengslum við slagsmál á næturklúbbi í Lundúnum fyrir þremur árum. Refsi...
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
Runólfur hefur gegnt stöðunni í tæp fimm ár og hefði upphaflegum skipunartíma hans lokið þann 1. mars næstkomandi. Í nýjum Spítalapúlsi Landspítalans ...
Brazil election: How 'Lula's Army' WhatsApp channel helped turn race around
📅 26.10.2026 👁️ 2
Brazil election: How 'Lula's Army' WhatsApp channel helped turn race around
Millions joined a 'Lula's Army' channel that helped to transform online enthusiasm into real-world mobilisation.
Independent review announced into murder of student Henry Nowak
📅 26.10.2026 👁️ 3
Independent review announced into murder of student Henry Nowak
"We must get to truth of what happened before, during and after that awful night," the home secretary says while announcing the review.
Uppsagnir hjá ÁTVR
📅 26.10.2026 👁️ 3
Uppsagnir hjá ÁTVR
Sviðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR, verður fækkað og ein staða framkvæmdastjóra lögð niður. Jafnframt verður stöðugildum á skrifstofu o...
Áhrifavaldur lifði af fall af 35. hæð – Þetta bjargaði lífi hennar
📅 26.10.2026 👁️ 4
Áhrifavaldur lifði af fall af 35. hæð – Þetta bjargaði lífi hennar
Wan Anan, 27 ára áhrifavaldur frá Kína, lifði af fall af 35. hæð byggingar í borginni Changsa. Næstum hvert einasta bein í líkama hennar brotnaði og þ...
Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? - Vísir
Í hlaðvarpsþættinum Skuggavaldið fjalla prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir um skjalavörðinn Vasilí Mitrokhin. Hann starfaði hjá sové...
Nýtt bókun 35 mál - Fékk ekki að nýta persónuafslátt eiginkonunnar á grundvelli EES
📅 26.10.2026 👁️ 4
Nýtt bókun 35 mál - Fékk ekki að nýta persónuafslátt eiginkonunnar á grundvelli EES
Mál sem tengist innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn, á Íslandi, kom nýlega til kasta yfirskattanefndar. Nefndin staðfesti niðurstöðu ríkisskatts...
Hvernig náði Lula sögulegum sigri í Brasilíu og fjöldahreyfing stúdenta stórsigri í Serbíu?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvernig náði Lula sögulegum sigri í Brasilíu og fjöldahreyfing stúdenta stórsigri í Serbíu?
Hvernig vann Lula, forseti Brasilíu, sögulegan sigur í landinu í gær og hvernig tókst fjöldahreyfingu stúdenta að vinna stórsigur í þingkosningum í Se...
Samskiptastjóri Landspítala svarar Ragnari Frey
📅 26.10.2026 👁️ 4
Samskiptastjóri Landspítala svarar Ragnari Frey
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir setti stórt spurningamerki við fréttir Landspítala af starfseminni og telur nær að nýta það fjármagn í að opna sjúkrarú...
Russell Brand asked assistant for female fan phone numbers, court hears
📅 26.10.2026 👁️ 4
Russell Brand asked assistant for female fan phone numbers, court hears
Helen Berger said she left her job working for Brand after she became "sick of him."
Aaj TV: Usmani tilkynnti um umfangsmikinn fjárstuðning við Hamas áður en hann kom til Reykjavíkur
📅 26.10.2026 👁️ 4
Aaj TV: Usmani tilkynnti um umfangsmikinn fjárstuðning við Hamas áður en hann kom til Reykjavíkur
Pakistanski fræðimaðurinn Muhammad Taqi Usmani, sem hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi 21. október, hitti Khaled Mashal og Ismail Haniyeh, æðst...
Segir landsbyggðarþingmenn ríkisstjórnarinnar í snúinni stöðu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir landsbyggðarþingmenn ríkisstjórnarinnar í snúinni stöðu
Eyjólfur Ármannsson íhugar breytingar á breytingum á Loftbrú. Ákvörðun sem ráðherra kynnti fyrir helgi mætti mikilli mótstöðu; að niðurgreiða sex flug...
Segir rangt að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir rangt að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur
„Hörður hefur verið boðaður á alla stjórnarfundi Landsvirkjunar nema þá þar sem verið er að fjalla um málefni sem tengjast honum beint,“ segir Brynja ...
Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar
📅 26.10.2026 👁️ 4
Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar
Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar Fréttin26. október 2026Aðsend grein, Heilbrigðismál, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comme...
Stór hluti Ox­ford Street orðinn göngu­gata - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Stór hluti Ox­ford Street orðinn göngu­gata - Vísir
Reuters greinir frá því að lokunin sé varanleg og marki fyrsta skrefið í víðtækari endurnýjun svæðisins. Samkvæmt AP-fréttastofunni nær göngukaflinn f...
Four arrested after police raid suspected drug den in Tenerife
📅 26.10.2026 👁️ 4
Four arrested after police raid suspected drug den in Tenerife
Four people have been arrested in Santa Cruz de Tenerife after the National Police uncovered a suspected drug-dealing operation involving crack cocain...
Áætlun Úkraínumanna um drónaárás á loftvarnir Moskvu hefur verið stöðvuð – FSB (MYNDBAND)
📅 26.10.2026 👁️ 4
Áætlun Úkraínumanna um drónaárás á loftvarnir Moskvu hefur verið stöðvuð – FSB (MYNDBAND)
Áætlun Úkraínumanna um drónaárás á loftvarnir Moskvu hefur verið stöðvuð – FSB (MYNDBAND) Fréttin26. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment...
Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu
Hluta hinnar sögufrægu verslunargötu Oxford-strætis í London var í dag breytt í göngugötu. Sadiq Khan, borgarstjóri í London, sagði að götuhlutanum he...
Gervigreindarmynd Musk um Ódysseif fær harkalega útreið – „Algjört rusl“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Gervigreindarmynd Musk um Ódysseif fær harkalega útreið – „Algjört rusl“
Áhorfendur taka fálega í nýjasta sköpunarverkið úr smiðju auðkýfingsins Elon Musk, um er að ræða fyrsta þátt úr útgáfu hans af Ódysseifskviðu.Líkt og ...
Hilmir Snær svarar gagn­rýn­endum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hilmir Snær svarar gagn­rýn­endum - Vísir
Menningarvaktin er komin á fulla ferð á Vísi á ný og í nýjasta þættinum fékk Símon Birgisson leikhúsgagnrýnandi til sín Magnús Jochum Pálsson, menning...
Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu Héraðsdómur Norðurlands eystra Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Arcdata ...
36-year-old man in critical condition after falling from balcony in Gran Canaria
📅 26.10.2026 👁️ 4
36-year-old man in critical condition after falling from balcony in Gran Canaria
A 36-year-old man is in a critical condition after falling from a balcony onto a street in Las Palmas de Gran Canaria in the early hours of this morni...
Sagðir vilja fá Or­bán til að stýra Sam­einuðu þjóðunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Sagðir vilja fá Or­bán til að stýra Sam­einuðu þjóðunum - Vísir
Ritstjórn Wall Street Journal, eins af flaggskipunum í fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, sagði frá áhuga ríkisstjórnar Donalds Trump á að fá Orbán til þ...
Mjög lítil áhætta fyrir íslenskan almenning
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mjög lítil áhætta fyrir íslenskan almenning
Sóttvarnastofnun Evrópu telur mjög litla hættu á að ebóla greinist í einhverjum mæli í Evrópu í tengslum við faraldurinn sem geisar í Kongó, Kenía og ...
Eitthvað er rotið í Landsvirkjun
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eitthvað er rotið í Landsvirkjun
Eitthvað er rotið í Landsvirkjun Fréttin26. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Samsett mynd: Hörður Arnarsson/Landsvirkjun. Páll Vi...
Drivers jailed over deaths of mum and daughter in Leeds
📅 26.10.2026 👁️ 3
Drivers jailed over deaths of mum and daughter in Leeds
Hardeep Bhachu and Jasskamal Riyat are warned of the 'irreversible' consequences of their actions.
Hæstaréttardómarinn sem framlengdi kosningafrest var áður lögmaður Lulas – sem sneri stöðunni við og vann á ævintýralegan hátt
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hæstaréttardómarinn sem framlengdi kosningafrest var áður lögmaður Lulas – sem sneri stöðunni við og vann á ævintýralegan hátt
Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, var endurkjörinn á sunnudag eftir óvenjulegan endi á forsetakosningunum. Ákvörðun um að lengja kosningafr...
AI giant Anthropic unveils plans for blockbuster share listing
📅 26.10.2026 👁️ 4
AI giant Anthropic unveils plans for blockbuster share listing
The company will be the first true artificial intelligence company to go public as tech firms continue to invest heavily in AI.
Anthropic warns of AI's 'catastrophic risks' ahead of blockbuster share listing