„Við erum bara hér til að brjóta allt og bramla,“ svarar ungur maður þegar hann er spurður hvers vegna hann taki þátt í mótmælum í Frakklandi.
Maðurinn segist vera framhaldsskólanemi og ætla að mæta í allar aðgerðir þar sem skólum er lokað. Viðtalið var sýnt á fréttastöðinni CNews 21. október í umfjöllun um mótmælin og óeirðirnar í landinu.
Nefnir skólamat og bensínverð
Þegar spyrillinn biður hann um að útskýra ástæður mótmælanna hikar hann og nefnir að maturinn í mötuneytinu sé dýr.
Spyrillinn bendir honum á að fólk þurfi að vita hverju það sé að mótmæla áður en það taki þátt. Maðurinn leggur hins vegar aftur áherslu á skemmdarverkin og bætir við: „Okkur er sama.“
Aðspurður hvort honum sé alvara reynir hann aftur að útskýra óánægjuna. Hann segir hlutina vera dýra og nefnir bensínverð.
Spyrillinn bendir honum á að skólagangan sé ókeypis. Maðurinn tekur undir það en bendir á að það kosti peninga að nota bíl.
An honest ‘student protester’ in France explains why he’s protesting.
The question: “Why are you protesting?”
He replies: “I don’t know. I’m just here to smash and destroy things.”
But they just want a better education, you guys. https://t.co/p7rKypUlZO
— Dr. Maalouf (@realMaalouf) October 25, 2026