Í EES innleiðum við reglur sem samþykktar eru og settar úti í Evrópu án íslenskrar aðkomu en værum við í ESB tækju íslenskir þingmenn þátt í að setja Evrópureglurnar. Þetta er hin einfalda staðreynd. Hvað bókun 35 varðar þá er hún til að tryggja að fólk njóti sömu réttinda alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta er er hornsteinn þess að hinn samevrópski vinnumarkaður gangi upp. Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB