Ung spænsk kona sem kom til Íslands segist hafa náð að vinna sér inn talsverða summu fyrir 200 klukkutíma vinnu. Hún er ein af fjölmörgum útlendingum sem starfa hér í ferðamannaiðnaðinum.„Ég vann mér inn 4.561 fyrir um 200 vinnustundir,“ segir hin spænska Clara Bermejo í myndbandi á TikTok, sem hefur vakið talsverða athygli. En það gerir um 625 þúsund krónur. Tölurnar sem hún birtir eru fyrir ágústmánuð.
Spænsk kona lýsir því hversu mikið hún græddi á að vinna á Íslandi – Aðeins 4.400 krónur fóru í afþreyingu