Fyrirsætan Heidi Klum er löngu byrjuð að undirbúa árlegt hrekkjavökupartí sitt og hefur nú gefið fylgjendum sínum vísbendingu um búninginn í ár. Fylgjendur hennar klóra sér líklega margir í hausnum yfir vísbendingunni.Myndin gaf lítið upp, en búningurinn virtist vera... slímugur. Með myndinni fylgir spurningin: „Hvernig búning er ég í?“ Í færslunni mátti einnig sjá táknmyndir af stækkunargleri, draug, graskeri, blóðdropa, leðurblöku og köngulóarvef.
Heidi Klum tísar furðulegan hrekkjavökubúning sinn