Vopnahlé í bænum Oleshky í suðurhluta Úkraínu sem tók gildi í nótt heldur enn, samkvæmt úkraínskum yfirvöldum. Rússar hertóku bæinn 2022 og hafa síðan í maí haldið honum í herkví og ekki hleypt neinum mat eða öðrum neyðarvistum þangað. Fólk hefur því soltið og neyðst til að leggja sér gras til matar. Íbúar hafa lýst ástandinu sem helvíti á jörðu.
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti á föstudag að hún hefði haft milligöngu um vopnahléð. Það kveður á um að fólki verði leyft að yfirgefa bæinn á öruggan hátt og að neyðarvistum verði hleypt þangað inn.
Fyrir stríðið bjuggu um 24.000 manns í Oleshky. Um 2.000 manns eru þar núna.