Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að um sé að ræða sjónskoðun og leit með myndavél sem framkvæmd verður af sérhæfðum leitarmönnum sem munu síga niður í sprunguna.
Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Rætt var við bróður Lúðvíks, Elías, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Viðtalið er hægt að hlusta á og lesa að neðan.
Markmiðið ekki björgun
Í tilkynningu lögreglu kemur einnig fram að aðstæður á vettvangi séu afar krefjandi. Öll framkvæmdin taki mið af ítarlegu áhættumati sem unnið var í samstarfi innlendra og erlendra sérfræðinga. Vegna þessa sé markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður á vettvangi en ekki björgun.
Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn sagði í samtali við fréttastofu fyrr í morgun að undirbúningur hefði gengið vel. Um tólf manna teymi kæmi að aðgerðum í dag, meðal annars frá lögreglu, sérsveit ríkislögreglustjóra, slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og hjálparsveit skáta í Kópavogi, sem legði til sérhæfðan mann í rústabjörgun og búnað. Allir sem koma að verkefninu eru sérþjálfaðir í línuvinnu og fjallabjörgun, að sögn Bjarneyjar.
Í tilkynningu segir að áhersla sé lögð á að tryggja öryggi þeirra sem að aðgerðinni koma.
„Ekki verða veittar upplýsingar um leitaraðgerðina meðan á henni stendur en upplýsingar verða sendar á fjölmiðla um leið og þær liggja fyrir og aðstandendur hafa verið upplýstir,“ segir að lokum.