Hollendingar voru ein af fimm þjóðum sem tóku ekki þátt í Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, í fyrra sökum þátttöku Ísraela í keppninni og hernaði þeirra í Palestínu fyrir botni Miðjarðarhafs. Hinar þjóðirnar fjórar voru Írland, Ísland, Spánn og Slóvenía.
Sjá einnig: Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári
Talsmenn sjónvarpsstöðvarinnar Avrotros tilkynntu að sjónvarpsstöðin myndi halda áfram sniðgöngu sinni á keppninni annað árið í röð. Aðeins mánuði síðar tilkynnti sjónvarpsstöðin NPO að hún hefði tekið við skipulagningarskyldum Hollendinga og benti því allt til að Hollendingar yrðu með.
Nú hefur NPO hins vegar greint frá því að Hollendingar verði ekki með í keppninni sem verður haldin í Búrga í Búlgaríu sökum „ófullnægjandi stuðnings“ og því hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt.
„Sökum viðkvæmninnr í kringum þau mál sem eru í gangi höfum við ákveðið að taka skref til baka í bili,“ sagði Jet de Ranitz, stjórnarformaður NPO.
Sjá einnig: Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð
Hollendingar bætast því í hóp með Írum sem hafa þegar tilkynnt að þeir muni áfram sniðganga keppnina. Hvað varðar hinar þjóðirnar sem tóku ekki þátt í fyrra þá eiga þær allar eftir að taka ákvörðun um framhaldið, spænski útvarpsstjórinn José Pablo López hefur þó lagt til að þjóðin haldi sig frá keppninni.
Tékkar hafa vissulega líka dregið sig úr keppni fyrir næsta ár en það er af fjárhagslegum ástæðum en ekki pólitískum.