Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Samkvæmt heimildum fréttastofu er umfjöllunarefni fundarins hagræðingaraðgerðir og uppsagnir starfsfólks.
Niðurskurðurinn nær til allra sviða borgarinnar fyrir utan skóla- og frístundasviðs og velferðasviðs sem urðu fyrir hnífnum í sumar.
Ekki hafa fengist svör frá borgarstjórnarfulltrúum vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða ekki veitt viðtöl um málið fyrr en að loknum aðgerðum sem standa munu yfir í dag.
Hátt í tuttugu manns var sagt upp hjá borginni í júní og tugum í ágúst. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur sagði í ítarlegu viðtali við fréttastofu í byrjun september að frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar væru fram undan hjá Reykjavíkurborg.
Hildur nefndi sérstaklega að þjónustu- og nýsköpunarsvið borgarinnar væri mannafla- og fjárfrekt og að hægt væri að útvista verkefnum þess.