Segir nýja bók Truss þá rugluðustu sem hann hafi lesið
Gagnrýnandi Telegraph fer hörðum orðum um nýja bók fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Liz Truss kenna embættismönnum, fjölmiðlum og samflokksfólki sínu um fall ríkisstjórnar sinnar en gangast ekki við eigin ábyrgð.
Liz Truss, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sýnir engin merki þess að hafa dregið lærdóm af falli ríkisstjórnar sinnar haustið 2022. Þetta er mat Simons Heffers, sem birtir afar harðorðan dóm um nýja bók hennar, Bank Job, í breska dagblaðinu Telegraph.
Í bókinni heldur Truss því fram að ókjörnir embættismenn hafi haft meiri völd en ríkisstjórnin og að Englandsbanki hafi kippt undan henni fótunum vegna andstöðu við stefnu hennar. Heffer segir hana hins vegar hafa valdið eigin óförum.
„Af öllum bókum sem ég hef nokkru sinni ritdæmt og þóst hafa fram að færa alvöru röksemdafærslu er þessi án nokkurs vafa sú ruglaðasta,“ skrifar hann.
Englandsbanki helsti sökudólgurinn
Ríkisstjórn Truss féll eftir að Kwasi Kwarteng, þáverandi fjármálaráðherra, kynnti umfangsmiklar skattalækkanir í september 2022 án þess að samhliða væru kynntar aðgerðir til að fjármagna þær. Órói á fjármálamörkuðum fylgdi í kjölfarið. Kwarteng missti embættið þremur vikum síðar og Truss hrökklaðist …