Kosningar fóru fram um helgina og viðurkenndi Aleksandar Vučić, formaður stjórnarflokks Serbíu, ósigur sinn í kosningunum seint á sunnudag. Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embætta forsætisráðherra og forseta. Knúið var á um kosningar í flýti eftir tvö ár af nær látlausum mótmælum undir forystu stúdenta sem unnu stórsigur í kosningunum. Mótmælin hófust fyrir um tveimur árum þegar lestarstöð í Novi Sad hrundi og varð sextán að bana.
Í frétt Guardian segir að stuðningsmenn hafi í kjölfarið flykkst út á götur til að fagna sigrinum um helgina og í gær.
Þurfa að kalla saman þingið
Samkvæmt niðurstöðum kosninganna hlaut Stúdentalistinn 53 prósent atkvæða, sem færir honum 141 þingmann á 250 sæta þingi, en Framfaraflokkur Serbíu (SNS), flokkur Vučić, fékk 39 prósent og þar með 103 þingmenn. Samkvæmt stjórnarskrá Serbíu ber nýju þingi að koma saman innan 30 daga frá opinberum úrslitum kosninganna og eftir það gildir 90 daga frestur til að mynda nýja ríkisstjórn. Þá þarf einnig að halda forsetakosningar fyrir 27. desember, þar sem Vučić lét af embætti til að bjóða sig fram sem forsætisráðherra.
Í frétt Guardian segir að enn sem komið er hafi lítið komið fram um hvernig Stúdentahreyfingin, sem byggir á sameiginlegri ákvarðanatöku, muni í raun stjórna. Meðal frambjóðenda hennar voru fræðimenn, leikarar og bændur auk námsmanna, en hún er vísvitandi leiðtogalaus og án stigveldis, svo óljóst er hvern hún mun skipa forsætisráðherra og hverjir munu sitja í ríkisstjórn.
Í greininni er bent á nokkra áberandi einstaklinga í hreyfingunni, til dæmis Ilija Srdanović, hjartalækni sem leiddi framboðslistann, Dejan Šoškić, fyrrverandi seðlabankastjóra, og Radomir Saičić, prófessor í efnafræði við Belgradháskóla, sem talaði fyrir hönd listans eftir sigurinn.
Opinberar stofnanir mannaðar andstæðingum
Þá er einnig bent á í greininni að þó svo að flokkurinn hafi fengið þingmeirihluta standi hann frammi fyrir því að flestar opinberar stofnanir eru mannaðar embættismönnum hliðhollum fráfarandi stjórn, sem flækir það verkefni að endurskipuleggja stofnanirnar, sem er eitt af þeirra helstu verkefnum.
„Allir í námsmannahreyfingunni og hver einasti frambjóðandi á listanum gera sér fulla og mjög skýra grein fyrir þunga þeirrar ábyrgðar sem bíður okkar,“ sagði Ana Mirković, menntunarfræðingur við háskóla, sálfræðingur og frambjóðandi Stúdentalistans.
„Við lítum ekki svo á að við séum að græða vald og forréttindi með þessum kosningaúrslitum, heldur erum við að taka á okkur sögulega skuld sem við öxlum gagnvart okkar eigin þjóð og okkar eigin börnum.“
Mirković sagði í samtali við the Guardian að fyrsta forgangsmál hreyfingarinnar væri „félagsleg og sálræn afeitrun“ landsins.
Fjórtán ára stjórnartíð Vučić hefur verið lýst sem „kennslubókardæmi“ um einræðisstjórn, þar sem flokkur hans jók tök sín á fjölmiðlum, dómskerfinu og öðrum ríkisstofnunum og kosningar einkenndust af óreglu við skráningu, hlutdrægni fjölmiðla og mútum til kjósenda.
Ætla að uppræta spillingu
Stefnuskrá Stúdenta snerist þannig um að berjast gegn spillingu og endurreisa réttarríkið, meðal annars með því að stofna sjálfstæða lögreglueiningu sem heyrir undir saksóknara en ekki innanríkisráðuneytið, og að losa sig við lögreglumenn sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Einnig er stefnt að því að banna skipanir flokkshollra einstaklinga í ríkisfyrirtæki og efla fjárhagslega ábyrgð og opinbert eftirlit í nýjum sjálfstæðum stofnunum.
Mirković sagði að ný ríkisstjórn myndi uppræta „kerfi ógnana“ sem ýtti undir „ótta og skautun“, með því að „opna“ fjölmiðla „tafarlaust“, binda enda á þrýsting á starfsfólk hins opinbera og „stöðva stofnanalegt ofbeldi“.
Hún bætti við að markmiðið væri að „endurreisa samfélagið frá grunni: fullt gagnsæi allra samninga og fjárstreymis; afpólitísering og efling dómskerfisins; endurnýjun mennta- og heilbrigðiskerfisins“, og að yfirtaka á ríkinu ætti „aldrei aftur“ að vera möguleg.
Í frétt Guardian segir að lokum að sigur hreyfingarinnar marki djúpstæða pólitíska breytingu í Serbíu og gæti hugsanlega orðið öðrum námsmannahreyfingum innblástur, sem hafi sprottið upp víða um Evrópu á undanförnum vikum og krafist betri menntunar og framtíðarhorfa.