Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um sjö eða níu þúsund krónur, heldur hvernig samið er við flugfélagið.
Hann vill að ríkið semji um kaup á innanlandsflugmiðum á föstu verði í stað þess að niðurgreiða hlutfall af miðaverði í gegnum Loftbrú.
Þóroddur segir núverandi fyrirkomulag ekki taka nægilegt mið af þörfum landsbyggðarfólks sem þurfi að ferðast með skömmum fyrirvara. Þetta kom fram í Silfri kvöldsins.
Þóroddur sagði að umræðan um Loftbrú hefði beinst um of að fjárhæð niðurgreiðslunnar í stað þess að skoða hvað flugferðir kosta í raun. Fólk sem þurfi skyndilega að ferðast vegna veikinda í fjölskyldunni eða annarra óvæntra atburða geti þurft að greiða allt að 50 þúsund krónur fyrir flug aðra leið.
„Hvernig í ósköpunum stendur á því að það er ekki bara sagt: Við ætlum að kaupa hérna 80.000 miða og þeir eru bara á einhverju föstu meðalverði?“
Hann nefndi sem dæmi að ríkið gæti samið við Icelandair um kaup á flugmiðum fyrir um 22.500 krónur stykkið. Ef ríkið greiddi níu þúsund krónur af hverjum miða myndi farþeginn greiða um 13.500 krónur.
Forsenda slíks samnings væri að miðaverðið héldist óbreytt óháð því hvenær ferðin væri bókuð.
„Þetta snýst ekki um sjö þúsund eða níu þúsund krónur. Þetta snýst um aðra hluti,“ sagði hann.
Innviðaráðherra kynnti á föstudag áform um að breyta niðurgreiðslum Loftbrúar úr 40 prósentum af verði flugmiða í fasta upphæð, 7.000 krónur á fluglegg. Eftir harða gagnrýni hefur ráðherra sagst ætla að skoða hækkun í 9.000 krónur.
Segir stjórnvöld skorta sjónarhorn landsbyggðarinnar
Þóroddur taldi deiluna um Loftbrú endurspegla stærra vandamál í ákvarðanatöku stjórnvalda. Þar sem stjórnsýslan væri að mestu staðsett á höfuðborgarsvæðinu væru ákvarðanir gjarnan teknar út frá sjónarhorni fólks sem þar byggi.
Afleiðingarnar gætu verið þær að ákvarðanir sem virtust skynsamlegar í Reykjavík reyndust verulega íþyngjandi fyrir fólk annars staðar á landinu.
Hann nefndi sérstaklega að ríkið hefði hagrætt með því að færa opinbera þjónustu á færri staði en legði síðan auknar álögur á fólk sem þyrfti að ferðast til að sækja hana, meðal annars með kílómetragjaldi.
„Það sem fer kannski í taugarnar á fólki er að fyrst er verið að þjappa saman þjónustunni en svo ætlar ríkið að skattleggja þig fyrir að sækja þjónustuna,“ sagði Þóroddur.
Kallar nýtt náttúruinnviðagjald aðför að landsbyggðinni
Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, tók undir gagnrýni á vinnubrögð stjórnvalda. Hún sagði fyrirhugað náttúruinnviðagjald á þrjá ferðamannastaði í sveitarfélaginu sérstakt áhyggjuefni.
„Okkur þykir það afar sérstakt að það eigi að senda skattakrumluna loðbeint á eitt svæði á landinu,“ sagði Ásta.
Hún sagði ferðaþjónustuna hafa byggt upp fjölbreytt atvinnulíf á svæðinu og óttaðist að nýjar álögur gætu haft áhrif á fyrirtæki, störf og tekjur sveitarfélagsins. Þá gagnrýndi hún skort á greiningum og samráði við undirbúning gjaldsins.
Hægt er að horfa á Silfrið í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Aðrir gestir þáttarins voru Dagur B. Eggertsson varaformaður fjárlaganefndar og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.