Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjálfir.
„Bissnissmódel sem meikar ekki alveg sens“
Einkareknum búsetuúrræðum sem vista börn með fjölþættan vanda og eru með til þess gerð leyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála í dag, hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu árum. Kostnaður hins opinbera vegna þeirra hefur hækkað verulega og hleypur nú á milljörðum.
Andri Már Ágústsson, sem hefur sjálfur unnið í slíkum úrræðum og stofnaði eitt þeirra, segir hvatana í kerfinu skakka.
„Þegar þú færð barn til þín, þú færð samning sem borgar vel og ert með fólk í vinnu. Svo gengur vel og þú þarft að segja samningnum upp af því að það gengur svo vel og hann treystir sér til að fara heim, þá ertu alltaf að taka ákvörðun um að reka fólk. Þetta er kannski svona bissnissmódel sem meikar ekki alveg sens, þegar fyrirtækið græðir á því að barninu gangi ekki nógu vel,“ segir hann.
Hagnaðurinn tæpar 70 milljónir
Vopnabúrið er eitt af þeim fyrirtækjum sem hefur opnað búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Afkoma fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld hjá fyrirtækinu var í fyrra tæpar 90 milljónir króna, en hagnaðurinn var að endingu 70 milljónir króna.
Fyrrverandi starfsmenn segja að á meðan eigendurnir hafi hagnast hafi verið sparað í þjónustu við börnin. Í einu tilviki hafi barn verið látið sofa á dýnu inni í golfhermi í öðru húsnæði fyrirtækisins.
„Mér fannst þetta bara hræðilegt. Af hverju gat hann ekki bara stokkið í IKEA og keypt rúm? Þau fá fullt af pening og það kostar ekki það mikið,“ segir fyrrverandi starfsmaður, sem vildi ekki koma fram undir nafni. Sagðist óttast afleiðingarnar.
Eigendur Vopnabúrsins vildu ekki veita viðtal en segja í skriflegu svari að frásagnir fyrrverandi starfsmanna geti gefið skakka mynd vegna hagsmunaárekstra.
Kveikur fjallar um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í kvöld klukkan 20:15.