Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.
Úrkoma hefur víða mælst meiri en spár gerðu ráð fyrir og skilin virðast ganga hraðar yfir en reiknað var með, einkum á norðanverðu landinu, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.
Þegar fallið ein skriða á veg í Njarðvíkurskriðum
Vegagerðin hefur tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg í Njarðvíkurskriðum. Samkvæmt Veðurstofunni bendir það til þess að hlíðar séu óstöðugar vegna úrkomunnar.
„Á meðan úrkoma heldur áfram er ekki hægt að útiloka frekari skriður eða grjóthrun. Af þessum sökum hafi Veðurstofan gefið út gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi.“
Einnig verið gefin út gul viðvörun á Tröllaskaga vegna skriðuhættu vegna langvarandi úrkomu sem mælst hefur á Siglufirði frá því í nótt.
Fólk er hvatt til að sýna aðgát þar sem vegir liggja víða undir bröttum hlíðum, sérstaklega á samgönguleiðum þar sem hætta getur verið á skriðum og grjóthruni. Fólk er jafnframt hvatt til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun.