Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á miðvikudag í síðustu viku. Segir í umfjölluninni að Usmani sé 83 ára gamall fyrrverandi dómari við sjaría-áfrýjunardeild Hæstaréttar Pakistans.
Ekki opinber heimsókn
Hann hafi varið dauðarefsingu þeirra sem snúi baki við íslam og varið aflimanir og grýtingu sem refsingar samkvæmt íslömskum rétti. Hann hafi einnig gagnrýnt afglæpavæðingu samkynhneigðra og hvatt til hernaðaraðgerða gegn Ísrael.
„Þetta var ekki opinber heimsókn til okkar, hann heimsótti moskuna í hópi ferðamanna í einkaferð sinni um Norðurlöndin,“ segir Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi í samtali við Vísi. Hann segir aðstoðarmann Usmani hafa haft samband við meðlim moskunnar og beðið um að fá að heimsækja moskuna.
Ræða Usmani hafi verið haldin fyrir safnaðarmeðlimi, hún hafi verið almenns eðlis um íslam og náungakærleik, hana megi finna á netinu og segir Usmani moskuna ekki hafa neitt að fela.
Treysti íslensku samfélagi
Ræðan er 47 mínútna löng. Þar nefnir Usmani meðal annars í upphafi að það sé gleðilegt að heimsækja Ísland og kynnast þar hópi múslíma þrátt fyrir að þeir séu fáir. Þá blessar hann hópinn, ræðir síðan mikilvægi þess að iðka trúna svo fátt eitt sé nefnt og segir meðal annars að það sé sérstaklega mikilvægt að foreldrar beri ábyrgð á trúaruppeldi barna sinna í löndum líkt og á Íslandi.
Horfa má á hana í heild sinni hér fyrir neðan.
Samkvæmt fréttaflutningi hefur Usmani varið dauðarefsingu fyrir trúarfráhvarf, aflimanir og grýtingu. Vissuð þið af þessari afstöðu?
„Nei. Jafnvel þótt þetta sé rétt þá vitum við ekkert um málið, þetta voru ferðamenn. Hann starfar sem dómari og þesslags hlutir eru leyfilegir í hans landi. Hann heimsótti moskuna þar sem hún er frægur staður, rétt eins og Harpa og Perlan. Við gerðum enga bakgrunnskönnun og berum ábyrgð á því sem hann sagði í moskunni en ekki öðru. Fullt af fólki kemur til Íslands og er með ólíkar skoðanir.“
Um hvað var ræðan hans?
„Ég var ekki staddur á Íslandi en hún var almenns eðlis um íslam og um að vera góð manneskja. Ræðan er á ensku og það er hægt að sjá hana á Facebook.“
Óttist þið ekki að ræða manns með slíkar skoðanir geti verið túlkuð sem stuðningur við skoðanir hans?
„Nei, nei, eins og ég segi, ef hann hefði í heimsókn sinni til okkar farið að tala um þessa hluti þá hefðum við stöðvað hann. Hann er dómari, þetta er leyft í hans landi en við virðum frelsið til trúar og við fylgjum íslenskum lögum.“
Karim gagnrýnir að Morgunblaðið hafi ekki haft samband við sig áður en frétt miðilsins var birt. „Ég sá umfjöllunina bara í gær og í morgun þá vildi ég ekki svara þeim, ekki eftir að þeir dreifa hatri með þessum hætti.“
Finnst þér blaðið vera að dreifa hatri?
„Já, með því að heyra ekki í öllum aðilum, heldur dreifa efni sem sáir hatri í samfélaginu.“
Óttastu að þetta muni skaða orðspor Stórmoskunnar?
„Við þekkjum íslenskt samfélag. Það eru 400 þúsund Íslendingar og við treystum íslensku samfélagi. Íslendingar skilja þessa hluti og vita að moskan okkar er opin öllum, við höfum ekkert að fela.“