Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk Theresu Miller. Stjórnin segir að sú ákvörðun hafi verið tekin af Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra án þess að listakonan hafi verið upplýst um fyrirhugaðar aðgerðir.
Óásættanlegt sé að ráðist hafi verið í slíkt inngrip í listaverk án þess að fagleg málsmeðferð hafi verið viðhöfð eða viðeigandi samráð.
Verkið er staðsett á Hálsatorgi í Hamraborg og var opnað 2019. Verkið samanstóð af tólf línum sem tákna áttu hæstu stöðu sólarinnar á 21. degi hvers mánaðar. Í stað verksins var komið fyrir tilkynningu frá Kópavogsbæ um endurnýjun miðbæjar Kópavogs sem mikið hefur verið tekist á um.
Skora á bæinn að endurgera verkið eða efna til samkeppni
Í tilkynningu stjórnarinnar segir að samkvæmt samningi Kópavogsbæjar við Theresu Himmer frá 2019 hafi bæjaryfirvöldum verið heimilt að fjarlægja verkið að þremur árum liðnum ef hann treysti sér ekki til að viðhalda því vegna skemmda.
Sérstaklega hafi verið tilgreint þar að ekki sé átt við náttúrulega veðrun. Ekki hafi þó séð á verkinu, hvorki vegna veðrunar né skemmdarverka og því hafi ekki verið komið að viðhaldi á því.
Stjórnin skorar á bæinn að endurgera verkið eða efna til nýrrar opinnar samkeppni um útilistaverk og tryggja að hún fari fram í fullu samræmi við samkeppnisreglur Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM)
Jafnframt skorar BÍL á bæinn að endurskoða verklag sitt við ákvarðanir um opinber listaverk og tryggja að slíkar ákvarðanir séu framvegis teknar á faglegum og gagnsæjum grundvelli, í samráði við listafólk og viðeigandi fag- og menningaraðila.