Forseti ASÍ telur hið opinbera hafa gengið of langt í uppsögnum að undanförnu. Hann segir einkennilegt að vísa til þess að með uppsögnum sé verið að tryggja að gjaldskrár hækki ekki.
Stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar var fækkað um sjötíu og fjögur í gær og fimmtíu sagt upp. Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í dag. Sjö að auki fá tímabundna ráðningarsamninga sína ekki endurnýjaða. Sjúkratryggingar Íslands fækka störfum um sjö stöðugildi. Þá voru einnig uppsagnir hjá ÁTVR í vikunni.
Georg Páll Skúlason forseti ASÍ segir sambandinu þykja ansi langt gengið í uppsögnum. ASÍ voni að eitthvað lát verði á þeim.
„Það er ekkert sem kallar á að opinberir aðilar komi svona fram þegar verið er að fást við efnahagsástandið eins og þetta er núna.“
Kröfur verkalýðsins ekki að snúast í höndum þeirra
Í tilkynningu frá Sorpu um uppsagnirnar eru þær sagðar liður í hagræðingaraðgerð til að tryggja að gjaldskrárhækkanir verði undir 2,5 prósentum. Ríki og sveitarfélög samþykktu í haust að gjaldskrár myndu ekki hækka meira en 2,5 prósent.
Þetta var gert í tengslum við að verkalýðsfélög og Samtök atvinnulífsins sömdu um að kjarasamningar héldu þrátt fyrir að forsenduákvæði þeirra væru brostin.
Spurður hvort kröfur verkalýðsins séu þá að snúast í höndum þeirra segir Georg ekki rökrétt að setja það í slíkt samhengi. Aðspurður segir hann verkalýðsfélögin þó vissulega hafa gert ráð fyrir því að kröfunni yrði mætt með öðrum hætti en uppsögnum.
„Það er auðvitað ljóst að menn voru að finna leiðir til þess að kjarasamningar héldu og friður yrði á vinnumarkaði. Það er mjög einkennilegt að koma nokkrum dögum seinna og bera þessu við sem ástæðu fyrir uppsögnunum.“