Ferðin hófst í október 2024 og ætluðu ferðalangarnir að heimsækja tæplega 150 lönd á þremur og hálfu ári. Í umfjöllun BBC kemur fram að um tvö hundruð farþegar voru um borð í skipinu Villa Vie Odyssey þegar þeim var skipað að fara frá borði í bænum Sihanoukville í Kambódíu.
Eftir að átök hófust á milli Írans, Ísraels og Bandaríkjanna hækkaði olíuverð hratt. Forsvarsmaður skipsins sagði að áður fyrr hefði olían kostað átján hundruð dollara á hvert farþegarými á mánuði en væri verðið núna átta þúsund dollarar á farþegarými. Í íslenskum krónum fór verðið úr tæpum 220 þúsund krónum í tæpa milljón króna.
Þrátt fyrir að hafa reynt að draga úr olíunotkun hafði það ekki gengið og því er skipið fast í Kambódíu. Einhverjir farþeganna ákváðu að halda áfram að ferðast á landi en aðrir hafa komið sér fyrir í bænum og bíða eftir því að haldið verði aftur af stað. Þau hafi verið meðvituð um fjárhagsleg vandræði fyrirtækisins.
Fyrirtækið Villa Vie hóf á síðasta ári að bjóða eldri borgurum að flytja um borð í skipin þeirra. Einnig stóðu þau fyrir fjögurra ára löngu ferðalagi eftir að Donald Trump var kjörinn Bandaríkjaforseti fyrir þá sem vildu ekki vera í Bandaríkjunum á meðan embættistíð hans stendur yfir.