„Við erum tilbúin að leggja gríðarlega fjármuni í mannvirki og samgöngur en þegar kemur að börnum í vanda virðist alltaf vanta bæði peninga og pólitískan vilja,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann segir ólíku við að jafna viðbrögðum fólks þegar breyta á niðurgreiðslu á innanlandsflugi í Loftbrú og viðbrögðum við því þegar skelfilegir hlutir gerist í úrræðum fyrir börn.
Hann segir að vandi barna sé orðinn að tekjulind fyrir einkaaðila meðan hið opinbera bregðist skyldum sínum.
Þetta segir Grímur í aðsendri grein á Vísi sem ber fyrirsögnina „Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn“. Hann segir að fyrir tveimur árum hafi verið boðað til neyðarfundar þingmanna vegna útlits Ölfusárbrúar og fjallað um málið dögum saman í fjölmiðlum. Fyrr um sumarið hafi unglingur látist í bruna á Stuðlum og skýrsla sýnt fram á aukið ofbeldi og vaxandi vímuefnaneyslu meðal barna. Þá hafi ekki verið boðað til neins neyðarfundar.
Grímur vísar til þáttar Kveiks í gærkvöld um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn. Hann minnir á að fyrir tveimur árum hafi birst tvær heimsóknarskýrslur umboðsmanns Alþingis um Klettabæ og Vinakot.
„Niðurstöðurnar voru grafalvarlegar. Skortur á fagmenntuðu starfsfólki, vanmannaðar vaktir, verulegir annmarkar á eftirliti sveitarfélaga, ófullnægjandi lagagrundvöllur vistunar barna og skortur á skýrri lagaumgjörð og skráningu þegar kom að beitingu nauðungar og þvingunar.“
Hann sagði að viðvörunarljósin hafi logað skært þegar sama sumar kom út skýrsla um aukna áhættuhegðun barna.
„Það blasir við að málefni barna eru ekki ofarlega í raunverulegri forgangsröðun á Íslandi. Við höldum áfram að reka samfélag sem er að mörgu leyti barnfjandsamlegt. Áherslan er á efnisleg gæði fremur en geðheilbrigt umhverfi,“ skrifar Grímur.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, sagði í hádegisfréttum að Kveiks-þátturinn í gær og fjöldi skýrslna undanfarin ár sýni að ekki sé verið að tryggja hagsmuni barna með fjölþættan vanda. „Ég held það sé alveg ljóst að við séum að bregðast þessum hópi barna.“ Hún sagði að fjárhagslegir hvatar mættu ekki ráða för í þjónustu við börnin.
Grímur gagnrýnir forgangsröðun yfirvalda.
„Við erum tilbúin að leggja gríðarlega fjármuni í mannvirki og samgöngur en þegar kemur að börnum í vanda virðist alltaf vanta bæði peninga og pólitískan vilja. Þegar við höfum áhyggjur af peningum þá mætir Samkeppniseftirlitið óvænt í heimsókn en þegar við höfum áhyggjur af börnum er tilkynnt með viku fyrirvara um fyrirhugað eftirlit.“
„Við höfum sætt okkur við að útvista ekki aðeins þjónustu við börn heldur í raun ábyrgðinni á þeim. Börn í alvarlegum vanda eru send í úrræði þar sem eftirlit er ófullnægjandi, fagþekking af skornum skammti og réttindi þeirra ekki tryggð. Á sama tíma greiða eigendur sér há laun og taka út arð af starfseminni. Vandi barna er orðinn að tekjulind fyrir einkaaðila á meðan hið opinbera bregst skyldum sínum. Þetta er ekki bara sorglegt. Þetta er óásættanlegt.“