Hugmyndin um vestrænt lýðræði er falleg og því miður dálítið barnaleg. Við opnum kjörstaði, teljum atkvæði, treystum á fjölmiðla og gerum ráð fyrir að þeir sem taka þátt í stjórnmálabaráttunni spili allir eftir reglum. Ekki bara það, heldur reiknum við með því að allir spili eftir sömu reglum. Svo kemur bara í ljós að sumir láta tilganginn helga meðalið og beita öllum mögulegum og ómögulegum brögðum og brellum til að hafa betur. Svo eru það þeir sem hafa engan áhuga á leiknum í sjálfu sér. Þeirra markmið er að kveikja í vellinum.
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?